miðvikudagur, 31. júlí 2013

Fyrstu dagarnir


Jæja þá erum við loksins komnar til Keyna eftir sólarhrings ferðalag. Vorum komnar í gærmorgun og dagurinn i gær  fór í það aðeins að jafna sig eftir ferðalagið og koma sér fyrir í húsinu ofl. Það var hálf fáránlegt að keyra í gegnum borgina því þar voru bæði fín og flott steinhús og við hliðina bárujárns. En dagurinn i dag verður ógleymanlegur í minnum okkar allra. Við fórum í fyrstu heimsóknina í barnaheimilið og móttökurnar voru ógleymanlegar. Það er eiginlega ekki hægt að lysa þeim með orðum. Við löbbuðum inn við trommuslátt og söng og haldin var athöfn fyrir okkur og atriði. Svo var leitt okkur í gegnum skólalóðina. En það er varla hægt að lýsa deginum í dag og gleðinni sem fylgdi þannig ég ætla að láta myndirnar tala sínu máli. 























Engin ummæli:

Skrifa ummæli