Á morgunn!!!
Núna er ég að springa úr spenning , tæpir 8 tímar í brottför og allt að verða reddíííí :)
Í dag kláraði ég öll lyfja og krema kaup og er búin að fá bakpoka frá Malen og er að troða öllum fötunum mínum í hann ! En að ferðlaginu þá byrjum við á því að fjúga til kaupmannahafnar í fyrramálið kl 8 og förum þaðan í 5 tíma flug til DOHA og svo þaðan aftur í 5 tima flug til Nairobi...ég skora hér með á Helgu í löngu vitleysu á leiðinni og kanski í kleppara ef það er stemming fyrir því !!!
Ég er rosalega spennt en líka pínu stressuð að sjá alla fátæktina og eymdina sem er í Afríku , litla hjartað mitt mun kanski gráta en þetta er eitthvað sem verður ómetanlegt að upplifa. Ég er mest spennt fyrir því að fara inní "slömmin" og vera með börnunum í skólanum, það verður rosalegt að sjá það. En stelpurnar eru nú búnar að kryfja alla dagskránna hérna fyrir neðan vildi bara láta heyra í mér og segja ykkur hvað ég er spennt :)
Við ætlum svo að reyna að blogga á hverjum degi um allt sem við erum að gera svo fylgist með !
Engin ummæli:
Skrifa ummæli