miðvikudagur, 31. júlí 2013

Fyrstu dagarnir


Jæja þá erum við loksins komnar til Keyna eftir sólarhrings ferðalag. Vorum komnar í gærmorgun og dagurinn i gær  fór í það aðeins að jafna sig eftir ferðalagið og koma sér fyrir í húsinu ofl. Það var hálf fáránlegt að keyra í gegnum borgina því þar voru bæði fín og flott steinhús og við hliðina bárujárns. En dagurinn i dag verður ógleymanlegur í minnum okkar allra. Við fórum í fyrstu heimsóknina í barnaheimilið og móttökurnar voru ógleymanlegar. Það er eiginlega ekki hægt að lysa þeim með orðum. Við löbbuðum inn við trommuslátt og söng og haldin var athöfn fyrir okkur og atriði. Svo var leitt okkur í gegnum skólalóðina. En það er varla hægt að lýsa deginum í dag og gleðinni sem fylgdi þannig ég ætla að láta myndirnar tala sínu máli. 























mánudagur, 29. júlí 2013

Ferðalagið byrjað!



Við erum lagðar af stað! 24 tíma ferðalag að hefjast... Lendum kl 7:45 að staðartíma í Kenya 30.júlí.. Semsagt á morgun! 3 flug og mikil bið .. En það verður þess virði! Við ætlum að reyna að setja eitthvað hérna inn á hverjum degi.. Stay tuned

Jónína, Júlíana & Helga

sunnudagur, 28. júlí 2013

Á morgunn!!!




Núna er ég að springa úr spenning , tæpir 8 tímar í brottför og allt að verða reddíííí :)
Í dag kláraði ég öll lyfja og krema kaup og er búin að fá bakpoka frá Malen og er að troða öllum fötunum mínum í hann ! En að ferðlaginu þá byrjum við á því að fjúga til kaupmannahafnar í fyrramálið kl 8 og förum þaðan í 5 tíma flug til DOHA og svo þaðan aftur í 5 tima flug til Nairobi...ég skora hér með á Helgu í löngu vitleysu á leiðinni og kanski í kleppara ef það er stemming fyrir því !!!

Ég er rosalega spennt en líka pínu stressuð að sjá alla fátæktina og eymdina sem er í Afríku , litla hjartað mitt mun kanski gráta en þetta er eitthvað sem verður ómetanlegt að upplifa. Ég er mest spennt fyrir því að fara inní "slömmin" og vera með börnunum í skólanum, það verður rosalegt að sjá það. En stelpurnar eru nú búnar að kryfja alla dagskránna hérna fyrir neðan vildi bara láta heyra í mér og segja ykkur hvað ég er spennt :)

Við ætlum svo að reyna að blogga á hverjum degi um allt sem við erum að gera svo fylgist með !